Frítt á fyrsta heimaleik ársins!

Handbolti

Olísdeild karla í handboltanum fer loksins aftur af stað með alvöru landsbyggðarslag í KA-Heimilinu á laugardaginn þegar strákarnir okkar taka á móti Herði í fyrsta leiknum í tæpa tvo mánuði og við ætlum okkur mikilvægan sigur með ykkar stuðning!

Leikurinn hefst klukkan 15:00 og bjóða Slippurinn og Bílaleiga Akureyrar þér frítt á leikinn, það er því eina vitið að mæta á leikinn og tryggja tvö stig í hús, áfram KA!

Fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið er leikurinn í beinni á livey.events/ka-tv fyrir 1.000 kr.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is