Fyrsti heimaleikur í kvöld! Miðasala hefst 16:00

Handbolti
Fyrsti heimaleikur í kvöld! Miðasala hefst 16:00
Árni Bragi er mættur aftur heim!

Handboltinn hefst í kvöld þegar karlalið KA tekur á móti Fram klukkan 19:30 í KA-Heimilinu. Þetta verður fyrsti keppnisleikur liðsins í hálft ár og ljóst að eftirvæntingin er mikil og ætla strákarnir sér að byrja veturinn af krafti og sækja tvö stig með ykkar stuðning!

Athugið að vegna Covid reglna mega aðeins 200 eldri en 16 ára mæta á leikinn og opnar miðasala í KA-Heimilinu kl. 16:00. Ársmiðahafar þurfa að tryggja sér miða á leikinn með því að koma og sýna ársmiðann.

Yngri en 16 ára telja ekki í þessari tölu og fá frítt inn á leikinn. Annars er leikurinn einnig í beinni á KA-TV. Hlökkum til að sjá ykkur og áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is