Giorgi Dikhaminjia til liðs við KA

Velkominn í KA Giordi!
Velkominn í KA Giordi!

Handknattleiksdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi vetur en Georgíumaðurinn Giorgi Dikhaminjia skrifaði í dag undir hjá félaginu. Giorgi sem er 28 ára gamall er 188 cm á hæð og leikur sem hægri skytta en getur einnig leyst hægra hornið af.

Giorgi er landsliðsmaður Georgíu en hann skoraði meðal annars 9 mörk gegn Íslandi er liðin mættust í Georgíu á nýliðnum vetri. Hann skoraði svo 3 mörk í síðari leik liðanna sem fór fram á Íslandi. Hann kemur til liðs við KA frá Pólska liðinu KS Azoty-Pulawy en þar áður lék hann með HK Mesto Lovosice í Tékklandi.

Við erum afar spennt fyrir komu hans hingað norður en öll samskipti okkar við Giorgi og hans fólk hafa verið afar jákvæð og fagleg. Það verður afar spennandi að sjá til hans í gula og bláa búningnum og ljóst að hann mun styrkja okkar unga og efnilega lið sem verður að mestu byggt upp af KA strákum.

Í samtali við heimasíðu KA sagðist Giorgi vera mjög spenntur fyrir komunni norður og tók undir að öll samskipti við KA hafi verið afar jákvæð og fagleg. Hann sé hrifinn af framtíðarsýn KA sem sé skýr og sannfærði hann fyrir því að þetta væri rétta skrefið á hans ferli. Hjá KA sjái hann fyrir sér frábært tækifæri á að bæta sig bæði innan sem utan vallar, á Íslandi sé rík handboltahefð og deildin sé afar sterk. Það er spennandi verkefni framundan sem KA sé með í bígerð og er hann staðráðinn í að gefa allt sitt til félagsins.