Golfmót, barsvar og kynningakvöld

Handbolti
Golfmót, barsvar og kynningakvöld
Ólafur Gústafsson verður á kynningakvöldinu

Á laugardaginn næsta, 10. september, er styrktarmót handknattleiksdeilar KA í golfi. Mótið fer fram uppá Jaðarsvelli og eru enn ööörfá sæti laus í mótið. Skráning fer fram hér.

Að móti loknu verður stutt lokahóf þar sem veglegir vinningar verða veittir og dregið verður úr skorkortum fyrir mjög flotta vinninga. Um leið og lokahófið er búið, eða um 19:00 hefst PubQuiz! Friðjón, hjá JaðarBistro veitingasölu verður með glæsileg tilboð á hamborgurum og drykk fyrir alla þá sem koma á lokahófið eða í PubQuizið. Glæsilegir vinningar eru fyrir fyrsta sæti í pubquizinu - en keppt verður í tveggja manna liðum.

Klukkan 20:00 hefst síðan kynningakvöld handknattleiksdeildar þar sem bæði KA og KA/Þór liðin verða kynnt til leiks fyrir komandi átök í vetur. Fyrsti leikur hjá strákunum er á föstudagskvöldið gegn Haukum á útivelli en stelpurnar hefja leik 16. september í Vestmannaeyjum gegn ÍBV.

Sala á ársmiðum verður á kynningakvöldinu og almenn gleði. Frábær tilboð af veitingum, bæði í fljótandi og föstu formi!

Þannig ekta KA-dagskrá á laugardaginn gæti litið svona út:

Golfmót
18:30 Lokahóf Golfmóts og ná sér í glæsilega vinninga
19:00 PubQuiz uppá Jaðri í frábærum hópi með flottum vinningum
20:00 Kynningakvöld handknattleiksdeildar og ársmiðasala


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is