Líkt og flest liðin í deildinni hefur leikur ÍR verið upp og ofan, þeir hafa átt frábæra leiki en einnig dottið niður þess á milli, fjórir sigurleikir og fjórir tapleikir. ÍR tapaði í síðustu umferð fyrir ÍBV og þar á undan töpuðu þeir fyrir Fram.
Akureyri hefur átt í vissum erfiðleikum í deildinni en í síðustu umferð spilaði liðið fanta vel á útivelli gegn Fram og var virkilega ósanngjarnt að fá ekki stig út úr þeim leik sem Fram vann með einu marki. Þá vann Akureyri öruggan tíu marka sigur á Þrótti í fyrstu umferð Coca Cola bikarnum á sunnudaginn, nú er bara að bíða og sjá hvaða mótherja liðið fær í 16 liða úrslitunum.
Akureyri og ÍR mættust í 2. umferð Olís-deildarinnar í Austurbergi og það var hörkuleikur þar sem lengst af var algjört jafnræði með liðunum en á lokakafla leiksins sigu ÍR-ingar fram úr og unnu fjögurra marka sigur. ÍR-ingar geta ekki síst þakkað Kristófer markverði sigurinn en hann gjörsamlega lokaði markinu á síðustu mínútum leiksins.
Þegar litið er á tölfræði ÍR liðsins það sem af er deildarinnar sést að tveir útileikmenn bera liðið uppi, hornamaðurinn, Sturla Ásgeirsson hefur skorað 57 mörk og stórskyttan Björgvin Hólmgeirsson 56 stykki. Það hefur sýnt sig að þegar þessir leikmenn fá að leika lausum hala þá er voðinn vís þannig að það er augljóst að leita þarf allra leiða til að halda aftur af þeim.
Næstu þrír markaskorara ÍR eru línumaðurinn, Jón Heiðar Gunnarsson með 25 mörk og Arnar Birkir Hálfdánsson 23 mörk og Guðni Már Kristinsson 20 mörk.
Markvarslan hefur verið einn af lykilpóstum ÍR liðsins en Kristófer Fannar Guðmundsson hefur verið mjög öruggur í markinu. Arnór Freyr Stefánsson sneri heim í ÍR liðið eftir að hafa verið með HK síðustu ár og komið sterkur inn þá sjaldan sem Kristófer þarf aðstoð.
Hjá Akureyri hafa verið nokkrar breytingar á mannskapnum upp á síðkastið. Ein mikilvægasta breytingin er að þjálfarinn Heimir Örn Árnason er kominn í leikmannahópinn á ný og átti magnaðan leik gegn Fram í síðustu umferð. Þá er línumaðurinn Friðrik Svavarsson kominn inn í hópinn aftur eftir að hafa leikið með 1. deildarliði Hamranna í haust.
Nú þýðir ekkert annað en að bretta upp ermarnar og berjast til sigurs frá fyrstu mínútu og allt til enda með fulla trú á verkefninu, þá fylgir líka með gleðin og ánægjan sem skiptir öllu máli og smitar frá sér til áhorfenda sem örugglega láta þá ekki sitt eftir liggja.
Með von um að þú komir í Höllina,
Leikmenn og stjórn Akureyrar Handboltafélags.