Guðlaugur Arnarsson í þjálfarateymi KA

Handbolti

Guðlaugur Arnarsson kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla í handbolta og verður  Jónatani Magnússyni til aðstoðar. Ásamt því mun Gulli, eins og hann er alltaf kallaður, sjá um U-lið og 3. fl karla með Sverre Jakobssyni. 

Gulli er vandanum vaxinn í þjálfun og hefur þjálfað bæði hjá Val og Fram. Hann lék mörg ár í efstu deild á Íslandi og erlendis um tíma. Hann þjálfaði síðan Fram í þrjú ár og Val í önnur þrjú og varð liðið Íslands- og bikarmeistari undir stjórn hans og Óskars Bjarna Óskarssonar.

Við bjóðum Gulla velkominn í þjálfarateymi KA, sem einmitt hefja leik á morgun gegn Val í leik Meistara Meistaranna á Hlíðarenda kl. 16:00


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is