Guðmundur Helgi Imsland skrifaði í gær undir samning hjá Handknattleiksdeild KA og spilaði strax sinn fyrsta leik fyrir félagið er hann kom inn á í 29-23 sigri KA á Þór í opnunarleik KG Sendibílamótsins.
Guðmundur Helgi sem er fæddur árið 2004 er efnilegur markvörður sem kemur norður frá Fjölni. Hann er uppalinn í ÍR en lék einnig með ungmennaliði Vals áður en hann gekk í raðir Fjölnis þar sem hann lék á síðustu leiktíð.
Það er afar jákvætt að fá Guðmund í okkar raðir en hann er að flytja norður vegna náms og klárt að það mun styrkja hópinn okkar að fá hann í markmannsteymið okkar.
Andri Snær Stefánsson þjálfari liðsins segir hann hafa staðið sig vel á æfingum og komið flott inn í hópinn sem sést vel á því að hann spilaði strax sínar fyrstu mínútur fyrir KA í gær. KA og Þór mætast svo aftur á sunnudaginn í KA-Heimilinu kl. 15:00.