Gull hjá 5. flokki karla í efstu deild

Handbolti

Strákarnir á yngra ári 5. flokks karla í handboltanum unnu gull í efstu deild á lokamóti Íslandsmótsins sem fram fór um helgina á Ísafirði. Fyrir sigurinn á mótinu fengu þeir Vestfjarðarbikarinn stóra og fræga en strákarnir unnu alla leiki sína um helgina.

Strákarnir hafa æft af miklum krafti í vetur og bætt sig gríðarlega. Þeir enduðu að lokum í 2. sæti á Íslandsmótinu þegar samanlagður árangur í vetur er lagður saman en strákarnir eru með besta árangurinn á landinu á árinu 2022 með 2 gull og 1 silfur á þremur mótum.

KA2 stóð líka vel fyrir sínu en þeir unnu tvo leiki og töpuðu tveimur í 2. deild og ekki spurning að mikill efniviður býr í hópnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is