Handboltinn kynnir nýjar leikmannasíður

Handbolti

Handboltatímabilið er svo sannarlega komið af stað og hefur verið ótrúlega gaman að upplifa stemninguna í KA-Heimilinu bæði á leikjum KA og KA/Þórs. KA tekur á móti ÍR á morgun klukkan 17:00 og hvetjum við ykkur að sjálfsögðu öll að mæta og halda áfram þeirri stemningu og gleði sem ríkt hefur á heimaleikjunum.

Í tilefni leiksins á morgun þá vígjum við nú nýjar leikmannasíður fyrir bæði karla- og kvennaliðin okkar þar sem hægt er að kynnast leikmannahópunum sem og skoða tölfræði hvers og eins til þessa. Hægt er að skoða síðurnar með því að smella á "Handbolti" efst á síðunni og ýta svo á Leikmenn KA eða Leikmenn KA/Þórs til hægri.

Leikmenn meistaraflokks KA

Leikmenn meistaraflokks KA/Þórs


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is