Handknattleiksdeild KA í Macron

Handbolti

Handknattleiksdeild KA skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Macron og verða því handknattleikslið KA og KA/Þórs í fatnaði á vegum Macron frá og með næsta tímabili.

Það eru spennandi tímar framundan í handboltanum hjá okkur, meistaraflokkar KA og KA/Þórs hafa stigið stór skref fram á við á undanförnum árum og við stefnum enn hærra á næstu árum. Á sama tíma hefur iðkendum í yngriflokkum fjölgað mikið og gengi innan vallar verið frábært.

Nýr samningur handknattleiksdeildar við Macron er afar þýðingarmikill fyrir deildina og mun án efa lyfta starfi deildarinnar upp á enn hærra plan.

 

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is