Háspennuleikur KA og Aftureldingar árið 2001

Handbolti
Háspennuleikur KA og Aftureldingar árið 2001
Guðjóni Val var vel fagnað í leikslok (mynd: DV)

Deildarmeistarar KA og Afturelding mættust í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta þann 21. apríl árið 2001. Úr varð einhver mest spennandi leikur í sögu KA-Heimilisins sem varð tvíframlengdur og fór á endanum í bráðabana.

Jöfnunarmark Guðjóns Vals Sigurðssonar undir lok fyrri framlengingar er eitt frægasta mark sem skorað hefur verið í íslenskum handbolta. Það er því heldur betur þess virði að halda minningu þessa sögufræga leiks uppi og getur þú nú horft á leikinn í heild sinni hér fyrir neðan.

Mörk KA í leiknum: Guðjón Valur Sigurðsson 13 mörk, Halldór Jóhann Sigfússon 7, Heimir Örn Árnason 3, Giedrius Cerniauskas 3, Sævar Árnason 1, Arnór Atlason 1 og Andrius Stelmokas 1 mark. Í markinu vörðu þeir Hörður Flóki Ólafsson 22 skot og Hans Hreinsson 1 skot.

Mörk Aftureldingar í leiknum: Bjarki Sigurðsson 8 mörk, Savukynas Gintaras 7, Páll Þórólfsson 4, Galkauskas Gintas 3, Þorkell Guðbrandsson 3 og Magnús Már Þórðarson 3 mörk. Í markinu varði Reynir Þór Reynisson 26 skot.


Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is