KA/Þór tapaði með fjögurra marka mun gegn Haukum, 31:35, er liðin mættust í KA- heimilinu í dag í N1- deild kvenna í handbolta. Leikurinn var jafnframt síðasti heimaleikur KA/Þórs á tímabilinu. Markvörður Hauka, G. Bryndís Jónsdóttir, reyndist norðanstúlkum erfið í dag en hún varði 30 skot í leiknum og afrekaði að skora eitt mark. Martha Hermannsdóttir var besti maður KA/Þórs í leiknum en hún skoraði 9 mörk, þar af 2 úr vítum.
Blaðamaður Vikudags segir svo frá leiknum á vef blaðsins (vikudagur.is): Leikurinn var jafn framan af í fyrri hálfleik og heimamenn héldu í
við Hauka. Gestirnir fóru hins vegar að síga framúr þegar líða tók á hálfleikinn og með fjölda hraðarupphlaupa með
Hönnu G. Stefánsdóttir í fararbroddi náðu Haukar sex marka forystu, 16:10, þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. KA/Þór
náði þó að minnka muninn í þrjú mörk fyrir hlé og staðan 18:15 fyrir Hauka í hálfleik.
KA/Þór náði að minnka muninn í tvö mörk, 22:24, fljótlega í seinni hálfleik. Heimamenn misstu hins vegar dampinn þegar
líða fór á hálfleikinn, Haukar náðu mest sjö marka forystu og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 35:31.
Martha Hermannsdóttir var sem fyrr segir markahæst í liði KA/Þórs með 10 mörk, þar af 2 úr vítum. Ásdís
Sigurðardóttir og Arna Valgerður Erlingsdóttir skoruðu 6 mörk hvor. Unnur Ómarsdóttir 4, Emma Sardarsdóttir 3 mörk og Inga Dís
Sigurðardóttir 2 mörk.
Selma Sigurðardóttir varði 9 skot í marki heimamanna.
Hanna G. Stefánsdóttir átti góðan dag fyrir Hauka og skoraði 11 mörk, þar af 3 úr vítum. Ramune Pekarskyte skoraði 8 mörk og Erna
Þráinsdóttir kom næst með 7 mörk.
Fyrir lokaumferð deildarinnar er KA/Þór sem fyrr í sjöunda sæti deildarinnar með 13 stig en Haukar hafa 32 stig í fjórða sæti.