Heimaleikur gegn Aftureldingu á morgun

Handbolti

Baráttan heldur áfram í Olís deild karla á morgun, mánudag, þegar KA tekur á móti Aftureldingu í 8. umferð deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 18:30 og má búast við hörkuleik. Gestirnir sitja í 4. sæti deildarinnar á sama tíma og okkar lið er í 7. sætinu en þó munar einungis þremur stigum á liðunum.

KA liðið hefur sýnt svakalegan karakter í síðustu tveimur leikjum í deildinni og tekist að knýja fram stig með marki á lokasekúndunum gegn bæði ÍR og Selfoss. Strákarnir stefna hinsvegar á bæði stigin á morgun en þó er ljóst að það verður krefjandi verkefni enda Mosfellingar með hörkulið og litið mjög vel út það sem af er deildinni.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur, stemningin hefur verið gjörsamlega stórkostleg í KA-Heimilinu og hvetjum við ykkur eindregið til að mæta gulklædd og taka þátt af lífi og sál í stúkunni, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is