Heimir Örn aðstoðar Andra Snæ í vetur

Heimir Örn og Andri Snær eru spenntir fyrir komandi handboltavetri
Heimir Örn og Andri Snær eru spenntir fyrir komandi handboltavetri

Heimir Örn Árnason kemur inn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks KA í handbolta og mun aðstoða Andra Snæ Stefánsson í vetur. Heimir aðstoðaði liðið eins og hann gat á síðustu leiktíð en kemur nú af fullum krafti inn í þjálfarateymið en framundan er spennandi handboltavetur.

Andri Snær og Heimir Örn þekkja það ansi vel að vinna handboltaleiki saman en þeir voru liðsfélagar til margra ára bæði með KA og Akureyri Handboltafélagi. Þá unnu þeir lokaverkefnið sitt saman í Master Coach á vegum Evrópska Handknattleikssambandsins, EHF.

Heimir er uppalinn í KA og lék sína fyrstu meistaraflokksleiki tímabilið 1995-1996. Með KA vann hann allt sem hægt var að vinna en eftir Íslandsmeistaratitilinn með liðinu 2002 lék hann með Haslum í Noregi, Val, Fylki, Bjerringbro-Silkeborg í Danmörku, Stjörnunni, Akureyri Handboltafélagi, Hömrunum og loks aftur KA.

Heimir lék 23 landsleiki fyrir Íslands hönd og lék til að mynda á Evrópumótinu í Sviss árið 2006 en tímabilið 2005-2006 var hann valinn besti leikmaður Íslandsmótsins og aftur 2007-2008. Þá má ekki gleyma því að Heimir var valinn dómari ársins tímabilið 2016-2017 sem sýnir skýrt hve góða sýn Heimir hefur á leikinn frá hinum ýmsu hliðum.

Það er gríðarlega jákvætt að fá Heimi Örn af fullum krafti inn í teymið og verður afar spennandi að fylgjast með öflugu KA liði undir stjórn þeirra Andra og Heimis. Veturinn hefst fimmtudaginn 3. september næstkomandi en þá sækir KA lið HK heim í Kórnum í opnunarleik Olísdeildarinnar. Andri Snær er nú að hefja sitt annað tímabil sem aðalþjálfari liðsins og má með sanni segja að mikil eftirvænting sé fyrir vetrinum. KA liðið steig stórt skref í rétta átt á síðustu leiktíð og klárt að við stefnum áfram á áframhaldandi uppbyggingu á liðinu sem og umgjörðinni í handboltanum með þá Andra og Heimi í fararbroddi.