Höldur og Handknattleiksdeild framlengja um 2 ár

Handbolti

Bílaleiga Akureyrar Höldur og Handknattleiksdeild KA framlengdu á dögunum samning sinn um tvö ár. Þá var einnig framlengdur styrktarsamningur Hölds og KA/Þórs og og heldur því farsælt samstarf handboltans með Höldi næstu árin.

Þetta eru ákaflega jákvæðar fréttir enda er Höldur einn af stærstu styrktaraðilum Handknattleiksdeildar og stuðningur þeirra skiptir sköpum í áframhaldandi uppbyggingu handboltans innan KA og KA/Þórs. Við þökkum Höldi kærlega fyrir stuðninginn og hlökkum til að vinna áfram náið með þeim.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is