Ingibjörg Hauksdóttir í raðir KA/Þórs

KA/Þór hefur fengið til liðs við sig Ingibjörgu Hauksdóttur, en Ingibjörg kemur norður frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur spilað undanfarin 13 ár.

Ingibjörg er afar spennandi og öflugur markvörður sem mun klárlega styrkja okkar metnaðarfulla starf en KA/Þór sem lék sem nýliði í efstudeild á nýliðnum handboltavetri komst í undanúrslit í bikarnum auk þess að komast í sjálfa úrslitakeppnina.

Með Flint hefur Ingibjörg leikið í 2. deild auk U20 og U18 liða félagsins. Flint situr sem stendur í 7. sæti í 2. deild og er liðið á leið í úrslitakeppni Norgesmesterskap í U19. Þá varð félagið bikarmeistari Austurlands í U20. Ingibjörg á einnig að baki landsleiki með U18 landsliði Íslands og var meðal annars valin maður leiksins gegn Angólu á móti í Kína. Þess má einnig geta að hún varð Noregsmeistari í U17 (Bring) á sínum tíma.

Við bjóðum Ingibjörgu hjartanlega velkomna í KA/Þór og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hennar í KA-Heimilinu á komandi vetri.