Ingvar Heiðmann gengur í raðir KA

Ingvar og Andri Snær spenntir við undirskriftina
Ingvar og Andri Snær spenntir við undirskriftina

Handknattleiksdeild KA hefur borist góður liðsstyrkur en Ingvar Heiðmann Birgisson er genginn í raðir KA á nýjan leik og leikur með liðinu í Olísdeildinni á komandi vetri. Ingvar sem er þrítugur að aldri er öflugur varnarmaður sem leikur sem línumaður.

Ingvar hóf handboltaferil sinn með yngriflokkum KA en hann kemur frá Gullbrekku í Eyjafirði. Hann kom í kjölfarið upp í sameiginlegt lið Akureyrar en þaðan gekk hann í raðir ÍR er hann flutti suður tvítugur að aldri. Hann vakti verðskuldaða athygli með ÍR liðinu þar sem var einn af burðarásunum í sterkum varnarleik liðsins en hann missti vart úr leik með ÍR árin sem hann hélt til í Breiðholtinu.

Ingvar sem er hörku íþróttamaður tók sér svo pásu frá handboltanum og gerði það meðal annars gott í crossfit heiminum en hann var einnig öflugur í frjálsum íþróttum á sínum yngri árum.

Það er ákaflega jákvætt að sjá Ingvar mættan aftur á handboltavöllinn og að sjá hann aftur í gulu og bláu treyjunni. Það er klárt að koma hans mun styrkja hópinn okkar en Ingvar veit nákvæmlega fyrir hvað félagið stendur og afar gaman að sjá hve öflugur KA kjarni myndar liðið okkar á komandi leiktíð.