Jens Bragi Bergþórsson skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2027-2028. Jens sem verður tvítugur í sumar er algjör lykilmaður í meistaraflokksliði KA sem hefur átt frábæran vetur.
Jens hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína á línunni undanfarin ár en Jens sem er uppalinn hjá KA lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið aðeins 16 ára gamall veturinn 2022-2023. Hann hefur í kjölfarið leikið 81 meistaraflokksleik fyrir KA í deild og bikar auk þess að vera fastamaður í yngrilandsliðum Íslands. Í vetur hefur Jens haldið áfram að bæta sig og hefur hann gert 73 mörk í 22 leikjum og er með skotnýtingu upp á 84% auk þess að fiska þrettán vítaköst.
Jens var afar sigursæll með yngriflokkum KA en hann er hluti af hinum ógnarsterka 2006 KA árgang sem vann allt sem hægt var að vinna upp yngriflokkana en strákarnir töpuðu meðal annars ekki leik í öllum fjórða flokki en þeir urðu einnig Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna.
Frammistaða Jens í vetur sýnir skýrt að hann á svo sannarlega framtíðina fyrir sér og afar jákvætt að hann sé búinn að framlengja samning sinn við uppeldisfélagið. Það verður gaman að fylgjast með honum áfram stíga skref fram á við í gula og bláa búningnum og klárt að við höldum áfram að spila á okkar efnilegu og öflugu ungu leikmönnum og byggja þar með áfram á sterkum KA anda.