Joan Rúnadóttir Johannesen í KA/Þór

KA/Þór heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir næsta handboltavetur en í dag gekk Joan Rúnadóttir Johannesen í raðir félagsins.

Joan er spennandi færeyskur örvhentur leikmaður sem leikur í hægra horni en Joan sem er 19 ára gömul kemur norður frá Kyndil í Færeyjum. Hún hefur staðið sig afar vel með Kyndil undanfarin ár og orðið meðal annars færeyskur meistari sem og bikarmeistari með liðinu. Hún lék um tíma með U17 liði Ajax København er hún stundaði nám við Københavns Idrætsefterskole en annars hefur hún leikið með Kyndil í Færeyjum fyrir utan fyrstu skrefin sem hún tók með Nørrebjert Strandhuse IF í Danmörku.

Joan er fastamaður í yngrilandsliðum Færeyja en rétt eins og Agatha sem skrifaði undir hjá KA/Þór í vikunni er hún farin að banka fast á dyr A-landsliðsins þar sem hún hefur komið inn í æfingahóp í nokkur skipti.

Við erum afar spennt að fá hana Joan hingað norður og verður spennandi að fylgjast með framgöngu hennar og Agöthu en eins og flestir ættu að vita hefur færeyskur handbolti verið í gríðarlegri sókn og klárt að koma þeirra norður mun styrkja okkar öfluga lið enn frekar fyrir komandi baráttu næsta vetur.