Jóhann og Einar framlengja um 2 ár

Handbolti
Jóhann og Einar framlengja um 2 ár
Mikil ánægja ríkti við undirskriftina í kvöld

Jóhann Einarsson og Einar Birgir Stefánsson framlengdu í dag samninga sína við Handknattleiksdeild KA um tvö ár. Eru þetta mikil gleðitíðindi enda eru þarna á ferð öflugir ungir leikmenn sem ætla sér stóra hluti með KA liðinu sem leikur áfram í deild þeirra bestu á komandi tímabili.

Báðir eru þeir 22 ára og komu báðir sterkir inn í lið meistaraflokks nýliðinn vetur. Þá léku þeir lykilhlutverk í ungmennaliði KA sem tryggði sér sigur í 2. deildinni og þar með sæti í Grill-66 deildinni á næsta tímabili.

Einar Birgir er línumaður og var í hóp í öllum leikjum meistaraflokks síðasta vetur og gerði hann alls 22 mörk. Jóhann er leikstjórnandi og vann sér sæti í KA liðinu með frábærri frammistöðu með Ungmennaliðinu. Alls lék hann 13 leiki og gerði í þeim 13 mörk.

Það er gríðarlega jákvætt að halda þessum öflugu leikmönnum innan okkar raða og ætlumst við til enn meira af þeim á komandi vetri.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is