KA Íslandsmeistari í handbolta árið 2002

Handbolti
KA Íslandsmeistari í handbolta árið 2002
Atli var hylltur í leikslok! (mynd: Þórir Tryggva)

Það er komið að því að rifja upp oddaleik KA og Vals um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta árið 2002. KA liðið sem hafði lent 2-0 undir hafði jafnað einvígið í 2-2 og tókst loks hið ómögulega og hampaði titlinum eftir frábæran síðari hálfleik í oddaleiknum sem vannst 21-24 að Hlíðarenda.

Gríðarlegur fjöldi KA-manna lagði leið sína á leikinn og voru líklega meirihlutinn af þeim 1.300 manns sem hafði verið troðið í gamla íþróttasalinn að Hlíðarenda. Sigurgleðin sem braust út í leikslok var ógurleg en þarna varð KA Íslandsmeistari í handbolta öðru sinni og kvaddi því þjálfara sinn annað skiptið í röð með Íslandsmeistaratitli.


Hér má sjá útsendingu RÚV frá úrslitaleik liðanna að Hlíðarenda

Halldór Jóhann Sigfússon var markahæstur í KA liðinu með 8 mörk, Jóhann Gunnar Jóhannsson 4, Sævar Árnason 4, Heimir Örn Árnason 3, Andrius Stelmokas 2, Heiðmar Felixson 2 og Einar Logi Friðjónsson 1 gerði mark.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá herlegheitunum

En það var heldur betur ekki bara fagnað að Hlíðarenda því KA hópurinn flaug með bikarinn til Akureyrar og heljarinnar sigurhátið tók við í KA-Heimilinu. Þórir Tryggvason ljósmyndari flaug bæði suður á leikinn sem og til baka á sigurhátíðina og myndaði veisluna í bak og fyrir. Við kunnum honum bestu þakkir fyrir vinnuna að vinna þessar skemmtilegu myndir úr gömlu filmunum sínum og alveg ljóst að hans framlag til félagsins í gegnum árin er ómetanlegt.

RÚV fylgdist vel með sigurhátíðinni á Akureyri og fjallaði vel um málið. Atli Hilmarsson þjálfari liðsins var svo tekinn tali sem og Helga S. Guðmundsdóttir formaður KA.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is