KA sækir Selfoss heim kl. 19:30

Handbolti

Baráttan heldur áfram í Olís deild karla í handboltanum í kvöld þegar KA sækir Selfyssinga heim klukkan 19:30. Bæði lið unnu góða sigra í fyrstu umferðinni og spennandi leikur framundan í Hleðsluhöllinni.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á leikinn og styðja strákana til sigurs en fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni útsendingu á Selfoss-TV, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is