KA tekur á móti Val í dag

Handbolti

Það er enginn smá leikur framundan í dag þegar KA tekur á móti Val í Olís deild karla í handbolta. Þessi félög hafa barist ansi oft í gegnum tíðina á handboltavellinum og má búast við hörkuleik í KA-Heimilinu klukkan 18:30 þegar leikar hefjast.

KA liðið hefur komið mörgum sérfræðingum á óvart og er með 8 stig eftir frábæra leiki það sem af er vetri. Valsliðið er hinsvegar eitt af betur mönnuðum liðum landsins og er í toppbaráttunni og þarf svo sannarlega á stigunum tveimur að halda.

Það er alveg klárt að við þurfum öll að sameinast um það að mæta í KA-Heimilið og styðja okkar frábæra lið til sigurs ef strákarnir okkar ætla að ná stigunum tveimur í hús.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is