KA/Þór fékk ÍR í Coca-Cola bikarnum

Handbolti

Í dag var dregið í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikars kvenna í handbolta og var KA/Þór í pottinum. Stelpurnar fengu útileik gegn ÍR en áætlað er að leikurinn fari fram í kringum 5. febrúar næstkomandi.

ÍR leikur í Grill-66 deildinni og situr í 5. sæti deildarinnar og ljóst að þær munu gefa sig allar í verkefnið gegn okkar flotta liði. KA/Þór komst í undanúrslit bikarsins fyrir tveimur árum síðan og ekki nokkur spurning að stelpurnar ætla sér þangað í ár.

8-liða úrslitin líta annars svona út:

FH - Valur
HK - Fram
ÍR - KA/Þór
Fjölnir - Haukar


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is