KA/Þór sækir Hauka heim kl. 16:00

Handbolti

Það er svo sannarlega stórleikur framundan í Olísdeild kvenna í handboltanum í dag þegar KA/Þór sækir Hauka heim klukkan 16:00 á Ásvöllum. Síðustu leikir liðanna hafa verið spennuþrungnir og má heldur betur búast við áframhaldi á því í dag.

Síðast þegar liðin mættust var það í undanúrslitum bikarsins í mars er stelpurnar unnu 22-21 baráttusigur þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunni. Bæði lið hafa leikið þrjá leiki í deildinni það sem af er vetri, KA/Þór er með 3 stig og Haukar eru með 2 stig.

Það verður spennandi að sjá hvernig liðin mæta til leiks eftir þessa löngu pásu í deildinni en síðustu leikir fóru fram 26. september! Við bendum á að leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og því um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is