Selfoss - KA/Þór í beinni í kvöld

Handbolti
Selfoss - KA/Þór í beinni í kvöld
Hulda og stelpurnar eru klárar í slaginn!

Baráttan heldur áfram í Olís deild kvenna í kvöld þegar KA/Þór sækir lið Selfoss heim klukkan 20:00 í 15. umferð deildarinnar. Þetta verður þriðja viðureign liðanna í vetur en leikin er þreföld umferð hjá konunum og er leikur kvöldsins fyrsti leikur í síðasta þriðjungnum. Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað vegna ófærðar.

Fyrir leikinn er KA/Þór í 5. sæti deildarinnar með 13 stig en Selfoss er á botni deildarinnar með 4 stig og sárvantar sigur til að færast nær HK og Stjörnunni.

Það má með sanni segja að KA/Þór sé búið að vera með gott tak á Selfyssingum í fyrri leikjunum en stelpurnar unnu 18-23 útisigur í október þar sem okkar lið náði snemma góðu taki á leiknum og vann sannfærandi sigur.

Liðin mættust svo aftur í KA-Heimilinu fyrir tæpum mánuði síðan og þá vannst 33-22 stórsigur í líklega besta leik okkar liðs í vetur. Stelpurnar gjörsamlega keyrðu yfir lið gestanna og léku við hvern sinn fingur.

Þrátt fyrir tvo góða sigra á Selfyssingum í vetur og það að liðið sé á botni deildarinnar má alls ekki vanmeta liðið en til að mynda var liðið hársbreidd frá því að leggja topplið Vals að velli eftir skellinn gegn okkar liði en Selfoss leiddi 27-25 þegar þrjár mínútur lifðu leiks.

Við hvetjum að sjálfsögðu þá sem geta til að drífa sig í Hleðsluhöllina á Selfossi og hvetja stelpurnar okkar til sigurs en fyrir þá sem komast ekki verður leikurinn í beinni útsendingu á Selfoss-TV og er hægt að nálgast útsendinguna hér fyrir neðan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is