KA/Þór sækir toppliðið heim í kvöld

Handbolti

Það er enginn smá leikur í kvöld þegar KA/Þór sækir topplið Vals heim í Olís deild kvenna í handboltanum kl. 19:30. Stelpurnar eiga enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni og ætla að gefa allt í leikinn í kvöld en ljóst er að verkefnið verður ansi hreint krefjandi.

Aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni og situr okkar lið í 5. sæti aðeins tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í 4. sætinu sem er síðasta sætið sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Að vísu er ÍBV með betri stöðu í innbyrðisviðureignum félaganna sem þýðir að stelpurnar þurfa að enda með fleiri stig en ÍBV til að komast í úrslitakeppnina.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að fara á leikinn en bendum á að Valur-TV mun sýna leikinn beint og það er því um að gera að fylgjast vel með þessum mikilvæga leik hjá okkar magnaða liði, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is