KA U Deildarmeistari í 2. deild karla

Handbolti
KA U Deildarmeistari í 2. deild karla
Bikarinn fór á loft! (mynd: Þórir Tryggva)

Ungmennalið KA tók á móti ungmennaliði Fjölnis í hreinum úrslitaleik um Deildarmeistaratitilinn í 2. deild karla í handboltanum í KA-Heimilinu í gær. Bæði lið höfðu aðeins tapað tveimur leikjum í vetur en KA liðinu dugði jafntefli þar sem strákarnir höfðu unnið fyrri viðureign liðanna.

Leikurinn fór vel af stað þar sem bæði lið spiluðu hraðan og skemmtilegan sóknarbolta, jafnt var á öllum tölum í upphafi og í kjölfarið munaði aldrei meira en tveimur mörkum á liðunum. Í hálfleik leiddi KA 18-17 og mátti vart sjá hvoru megin sigurinn myndi enda.

Tímalína fyrri hálfleiks

Gestirnir náðu að komast yfir snemma í síðari hálfleik og komust í 17-19. Þá kom hinsvegar betur í ljós að þessi hraði leikur hafði tekið smá toll af liði gestanna og okkar lið gekk á lagið. Strákarnir bættu vel við og Svavar Ingi fór að verja vel í markinu. Mestur varð munurinn á liðunum sjö mörk og á endanum var sigur okkar liðs aldrei í hættu og 39-33 sigur staðreynd.

Tímalína seinni hálfleiks

KA U er því deildarmeistari í 2. deild þetta árið og mun leika í Grill66 deildinni á næsta ári. Þetta er stórt skref enda skulum við ekki gleyma því að aðallið KA og Akureyrar börðust þar á síðustu leiktíð og góður stimpill fyrir okkar starf að hafa ungmennalið í þeirri deild á næstu leiktíð.


Smelltu á myndina til að sjá myndir Egils Bjarna Friðjónssonar úr leiknum

Heimir Pálsson var markahæstur í leiknum með 9 mörk (þar af 5 úr vítum), næstur kom Elfar Halldórsson með 8, Þorri Starrason gerði 7, Sigþór Gunnar Jónsson 6, Einar Birgir Stefánsson 4, Jóhann Einarsson 3 og Bjarki Reyr Tryggvason og Hafþór Helgi Þórisson gerðu 1 mark hvor. Svavar Ingi Sigmundsson varði 13 skot í markinu.

Frábærum vetri lokið hjá ungmennaliðinu og verður virkilega gaman að fylgjast með gangi liðsins á næstu leiktíð, til hamingju strákar!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is