16.10.2009
Hinn árlegi KA dagur fyrir handbolta, júdó og blak verður haldinn n.k. laugardag 17. október. Ýmislegt verður um að vera en meigin tilgangur dagsins er
að innheimta æfingagjöld og skrá nýja þáttakendur. Skráning og innheimta hefst kl 10:30 og stendur til 13:30, á þessum tíma
verður einnig boðið upp á leiki sem þjálfarar yngriflokka munu sjá um, íþrótta markað með notuðum og nýjum
íþróttabúnaði. Einnig verður öllum boðið upp á veitingar, vöflur, kaffi eða safa. Við hvetjum sem flesta að láta
sjá sig á laugardaginn! Þess ber að geta að æfingagjöld fyrir yngriflokkastarf knattspyrnudeildar er ekki hægt að greiða á þessum
degi. Ef smellt er á lesa meira má lesa um nýtt og spennandi samvinnuverkefni sem allar deildir taka þátt í.
Við minnum einnig á að það er nýtt kortatímabil!
Samvinna:
Allar deildir innan raða KA hafa ákveðið að taka höndum saman og bjóða þeim sem þess óska að æfa hjá fleiri en einni deild
félagsins, upp á 10% afslátt af æfingagjöldunum. Einnig telja deildirnar sjálfsagt að krakkar æfi fleiri en eina grein og því geti
þau sleppt úr æfingum hjá einni deild til að komast að hjá annarri. Þá greiða þau æfingagjald fyrir það hlutfall af
æfingum sem þau ætla að stunda og fá afsláttinn. Auðvitað hefur það ekki áhrif á framgang þeirra í greinunum og val
í keppnislið þó að ekki sé mætt á allar æfingar viðkomandi deildar vegna þessa. Þá hefur verið ákveðið
að bæta við 10% systkinaafslætti milli deilda.