Kristín Aðalheiður framlengir um tvö ár

Handbolti

Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og leikur því með áfram með liðinu. Þetta eru frábærar fréttir en Kristín er uppalin hjá KA/Þór og afar mikilvægur hlekkur í okkar öfluga liði.

Kristín leikur í vinstra horni en hún er nýorðin 24 ára gömul og verið lykilþáttur í uppgöngu liðsins undanfarin ár. Hún hefur leikið alls 99 leiki í deild, bikar og evrópu fyrir KA/Þór og ljóst að næsti leikur hennar verður því sögulegur!

Á síðustu leiktíð lék Kristín 21 leik fyrir KA/Þór og gerði í þeim 44 mörk en með KA/Þór hefur hún unnið allt sem hægt er að vinna rétt eins og faðir hennar gerði með karlaliði KA á árum áður en faðir hennar er Jóhann Gunnar Jóhannsson en hann lék alls 417 keppnisleiki fyrir KA.

Það eru frábærar fréttir að við séum búin að framlengja við Kristínu og verður áfram spennandi að fylgjast með framgöngu hennar á vellinum fyrir KA/Þór.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is