Handboltaveislan er að hefjast en KA hefur leik í Olísdeildinni á útivelli gegn HK á fimmtudaginn. Á föstudaginn verður hinsvegar svo kynningarkvöld í kjallara KA-Heimilisins kl. 19:00. Andri Snær Stefánsson þjálfari liðsins kynnir liðið, hamborgara- og drykkjasala á svæðinu og stórskemmtilegt KA pub-quiz!
Þá verður sérstök forsala á kynningarkvöldinu á nágrannaslag KA og Þórs þann 16. september fyrir ársmiðahafa en leikurinn er fyrsti heimaleikur KA liðsins í vetur. Ársmiðasala verður á svæðinu og því eina vitið að mæta, græja ársmiðann og tryggja sér þannig strax miða á stærsta heimaleik vetrarins. Sjáumst á föstudaginn!
Athugið að miði á leik KA og Þórs er að sjálfsögðu innifalinn í ársmiðanum. Ársmiðasala hefst svo í Stubb að kvöldinu loknu en athugið að miðasala á leik KA og Þórs fer einungis fram í KA-Heimilinu í kjölfar kynningarkvöldsins