Kynningarkvöld KA og KA/Þórs

Handbolti

Handboltinn er farinn að rúlla af stað og er heldur betur spennandi vetur framundan hjá bæði KA og KA/Þór. Liðin verða með sameiginlegt kynningarkvöld þriðjudaginn 21. september klukkan 20:30 á Centrum Kitchen&Bar í Göngugötunni. 

Léttar veitingar verða í boði auk þess sem tilboð verða á fljótandi veigum. Þjálfarar liðanna munu kynna leikmenn en töluverðar breytingar hafa orðið á karlaliði KA og þá hafa Íslandsmeistarar KA/Þór styrkt sig enn frekar.

Ársmiðasalan verður í fullum gangi og eina vitið að koma sér í gírinn fyrir handboltaveisluna sem er framundan með því að kíkja á okkur á þriðjudaginn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is