Lenka Ratvajská gengur til liðs við KA/Þór

KA/Þór hefur samið við slóvakísku landsliðskonuna Lenku Ratvajská. Lenka er 25 ára, örvhent og leikur í hægra horni. Hún kemur til KA/Þórs frá HK Slovan Duslo Šaľa og skrifar undir tveggja ára samning.

Lenka hóf ferilinn hjá HC Bardejov en færði sig síðar til ŠŠK SLŠ Prešov. Þar lék hún í fimm ár með aðalliði félagsins í MOL-deildinni, sameiginlegri deild tékkneskra og slóvakískra liða. Árið 2021 gekk hún til liðs við Slovan Duslo Šaľa og hefur leikið þar síðan.

Hún varð slóvakískur bikarmeistari með liðinu á síðasta tímabili auk þess sem liðið hafnaði í öðru sæti MOL-deildarinnar. Lenka hefur verið valin besti hægri hornamaður Slóvakíu síðustu tvö tímabil og hefur leikið um 30 opinbera landsleiki fyrir Slóvakíu.

Lenka lýsir sér sem vinnusömum og ákveðnum liðsmanni sem leggur allt í leikinn. Hún segist kunna best við hraðan og einfaldan handbolta þar sem liðsheildin er í fyrirrúmi.

KA/Þór væntir þess að Lenka myndi öflugt dúó í hægra horninu með Joan Johannesen, sem kom til félagsins frá Kyndli í Færeyjum.

Við bjóðum Lenku velkomna til KA/Þórs.