Leó snýr aftur heim - skrifar undir 2 ára samning

Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar og Leó við undirritunina í dag
Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar og Leó við undirritunina í dag

Leó Friðriksson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og er nú samningsbundinn út tímabilið 2026-2027. Leó sem er uppalinn hjá KA lék með Þór í Grill66 deildinni síðasta vetur en snýr nú aftur heim.

Leó er fæddur árið 2007 og er efnileg vinstri skytta sem les leikinn afar vel. Hann hefur verið sigursæll með yngriflokkum KA undanfarin ár og þá hefur hann verið valinn í þó nokkur úrtök hjá yngrilandsliðum Íslands.

Það er afar gott að fá þennan öfluga kappa aftur heim en KA stefnir á að byggja upp öflugt lið þar sem kjarninn er uppfullur af ungum og metnaðarfullum uppöldum leikmönnum félagsins. Andri Snær Stefánsson sem tók við stjórn liðsins á dögunum er afar reyndur í þjálfun og þróun yngri leikmanna og verður spennandi að fylgjast með framþróun liðsins næstu árin. Við bjóðum Leó innilega velkominn aftur heim og hlökkum til að fylgjast með honum í gulu og bláu treyjunni næstu árin.