Logi Gauta framlengir til tveggja ára

Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar og Logi við undirritunina
Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar og Logi við undirritunina

Logi Gautason hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA. Logi hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína í vinstra horninu á undanförnum árum. Logi sem er listamaður innan sem utan vallar er fæddur árið 2005, snöggur og teknískur leikmaður sem getur skorað mörk í öllum regnbogans litum.

Logi sem er uppalin hjá KA er af góðu kyni en Dagur bróðir hans hefur leikið listir sínar með stórliði Montpellier í franska handboltanum í vetur og þá leikur bróðir þeirra hann Kári með Bikarmeistaraliði KA í knattspyrnu. Foreldrarnir, Gauti og Hafdís, taka einnig afar virkan þátt í starfi félagsins og mætti telja upp fleiri tengingar við þessa öflugu KA fjölskyldu.

„Það er fagnaðarefni að Logi skuli ætla að vera áfram í herbúðum KA. Logi er einstaklega skemmtilegur drengur sem hefur mikla burði til þess að verða einn fremsti hornamaður deildarinnar með réttu hugarfari og góðum æfingum. Hann hefur sýnt það hingað til að hann er óhræddur við að taka færin sín og nýtir þau vel. Ég sé mikla framtíð fyrir Loga hjá KA og í handboltanum“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA.