KA átti tvo fulltrúa í U20 ára landsliði Íslands í handbolta sem lék á Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Rúmeníu en það eru þeir Jens Bragi Bergþórsson og Magnús Dagur Jónatansson.
Íslenska liðið vann góðan 32-27 sigur á Austurríki í fyrsta leiknum í riðlinum en Jens gerði 3 mörk í leiknum. Í kjölfarið kom 28-33 tap gegn sterku liði Spánverja, þar sem Jens gerði 2 mörk. Það þýddi að lokaleikurinn gegn Lettlandi var úrslitaleikur um sæti í milliriðli. Eftir hörkuleik tókst strákunum að vinna 31-29 sigur og þar með sæti í milliriðli tryggt og gerði Jens 2 mörk.
Í fyrsta leik milliriðilsins mættu strákarnir Króatíu, eftir að Ísland hafði leitt 13-12 eftir fyrri hálfleikinn voru það Króatar sem unnu 25-26 eftir svakalegan leik, afar svekkjandi en sigurmarkið kom er tvær sekúndur lifðu leiks, Jens gerði 2 mörk í leiknum. Aftur þurftu strákarnir að sætta sig við svekkjandi tap í næsta leik er þeir mættu sterku liði Danmerkur en Danir unnu 29-31 þar sem Jens gerði 6 mörk. Því næst var leikið gegn Noregi, en íslensku strákarnir leiddu 14-12 í hálfleik en tókst ekki að halda út og Noregur vann 27-31 sigur. Jens gerði 6 mörk og Maggi 2 í leiknum.
Strákarnir voru ekki af baki dottnir og svöruðu fyrir sig með 35-23 stórsigri á Ísrael í næsta leik þar sem Jens gerði 6 og Maggi 2 mörk. Niðurstaðan varð því að leika um 13. sæti þar sem heimamenn í Rúmeníu biðu. Sigur íslenska liðsins var aldrei í hættu en staðan var 21-10 í hálfleik og að lokum vannst 39-26 stórsigur þar sem Jens gerði 2 mörk og Maggi eitt mark.
Með þessum árangri tókst íslenska liðinu að tryggja sæti á Heimsmeistaramótinu næsta sumar sem fram fer í Makedóníu en þá verða strákarnir komnir upp í U21 flokk. Flottur árangur og óskum við þeim Magga og Jens innilega til hamingju.