Magnað myndband er KA/Þór hampaði bikarnum

Handbolti

KA/Þór hélt áfram að skrifa söguna upp á nýtt er liðið tryggði sér Bikarmeistaratitilinn um síðustu helgi. Liðið sem hafði aldrei unnið stóran titil fyrir síðasta tímabil stóð að því loknu sem Íslands-, Bikar- og Deildarmeistari auk þess að vera Meistari Meistaranna.

Stelpurnar unnu frábæran 26-20 sigur á Fram í úrslitaleiknum sem fór fram að Ásvöllum og lokuðu þar með þessu fullkomna tímabili. Ágúst Stefánsson hefur hér tekið saman svipmyndir frá úrslitaleiknum en myndefnið er fengið úr útsendingu RÚV.

Bikarmeistaralið KA/Þórs
Aldís Ásta Heimisdóttir, Anna Mary Jónsdóttir, Anna Þyrí Halldórsdóttir, Arna Valgerður Erlingsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Hulda Bryndís Tryggvasdóttir, Júlía Sóley Björnsdóttir, Katrín Vilhjálmsdóttir, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, Martha Hermannsdóttir, Matea Lonac, Rakel Sara Elvarsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Sofie Søberg Larsen, Sólveig Lára Kristjánsdóttir, Sunna Guðrún Pétursdóttir, Sunna Katrín Hreinsdóttir, Telma Lísa Elmarsdóttir og Unnur Ómarsdóttir.

Þjálfari liðsins er Andri Snær Stefánsson og honum til aðstoðar eru þau Sigþór Árni Heimisson, Erla Hleiður Tryggvasdóttir og Egill Ármann Kristinsson.

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is