Matea framlengir við KA/Þór um tvö ár

Handbolti
Matea framlengir við KA/Þór um tvö ár
Frábærar fréttir!

Matea Lonac skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við KA/Þór og er nú samningsbundin liðinu út tímabilið 2024-2025. Þetta eru algjörlega frábærar fréttir enda hefur Matea verið einn allra besti markvörður Olísdeildarinnar undanfarin ár og var valin besti leikmaður KA/Þórs á nýliðnum vetri.

Matea gekk í raðir KA/Þórs fyrir tímabilið 2019-2020 og hefur hún í kjölfarið verið með bestu markvörðum landsins. Matea fór hamförum veturinn 2020-2021 er KA/Þór hampaði Íslandsmeistaratitlinum, Bikarmeistaratitlinum, Deildarmeistaratitlinum auk þess að verða Meistari Meistaranna og var þá með bestu markvörsluna í deildinni.

Á nýliðnum vetri var Matea valin besti leikmaður KA/Þórs en hún var með 33,3% markvörslu á tímabilinu. Það er gríðarlega sterkt að halda Mateu áfram innan okkar raða en auk þess að vera mögnuð innan vallar er hún gríðarlega sterkur karakter sem hefur komið frábærlega inn í starf félagsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is