Mikilvæg stig í húfi gegn Haukum

Handbolti

KA/Þór tekur á móti Haukum klukkan 15:30 í dag í Olísdeild kvenna. Stelpurnar eru á toppi deildarinnar ásamt Fram þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir af deildinni og ætla sér svo sannarlega tvö mikilvæg stig!

Haukar eru í 6. sætinu en hafa verið á góðu skriði að undanförnu og ljóst að stelpurnar okkar þurfa að vera klárar í slaginn til að sækja stigin mikilvægu. KA/Þór vann fyrri leik liðanna að Ásvöllum 20-21 eftir mikla dramatík og verður spennandi að sjá hvernig leikur dagsins mun spilast.

Miðasala er í fullum gangi í miðasöluappinu Stubbur en almenn miðasala hefst í KA-Heimilinu klukkan 13:00. Hlökkum til að sjá ykkur í stúkunni, við þu!

Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á KA-TV, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is