Handknattleiksdeild KA barst í dag ansi góður liðsstyrkur fyrir komandi vetur er Norðmaðurinn Morten Boe Linder skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Morten sem verður 28 ára gamall síðar í mánuðinum er örvhentur og getur bæði leikið sem skytta og í horninu en hann gengur í raðir KA frá norska liðinu Fjellhammer. Morten hefur verið í lykilhlutverki í liði Fjellhammers frá því hann gekk í raðir liðsins árið 2023 og verið meðal þeirra markahæstu manna en bæði árin hélt liðið sæti sínu í efstu deild.
Þar áður lék hann með liði Halden, einnig í efstudeild Noregs, þar sem hann var einnig meðal markahæstu manna en hann hefur undanfarin ár verið aðalvítaskytta bæði hjá Halden og Fjellhammers.
Það er ljóst að koma Mortens mun styrkja vel við okkar lið sem verður að mestu byggt upp af ungum KA strákum og er það von okkar að Morten muni aðstoða okkur í þróun þeirra auk þess að taka mikla ábyrgð í spili liðsins. Við erum afar spennt fyrir komu hans norður og væntum mikils af þessum öfluga kappa.