Myndaveisla frá bikarúrslitaleik KA/Þórs

Handbolti
Myndaveisla frá bikarúrslitaleik KA/Þórs
Stelpurnar gerðu sitt besta (mynd: Þórir Tryggva)

KA/Þór lék í fyrsta skiptið í úrslitum bikarkeppni HSÍ er liðið mætti Fram í úrslitaleik Coca-Cola bikars kvenna á laugardaginn. Fyrirfram var vitað að verkefnið yrði gríðarlega erfitt enda er Fram með besta lið landsins. Það varð einmitt raunin því þrátt fyrir fína frammistöðu þurftu stelpurnar okkar að sætta sig við silfur.

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á svæðinu og myndaði fjörið í Laugardalshöllinni í bak og fyrir og þökkum við honum kærlega fyrir myndaveisluna. Smelltu á myndina hér fyrir neðan til að skoða myndir Þóris frá leiknum.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris frá leiknum

Þá viljum við þakka fyrir þann gífurlega stuðning sem stelpurnar fengu í þessu skemmtilega verkefni. Fjölmargir Akureyringar gerðu sér ferð suður til að styðja við bakið á þeim í Laugardalshöllinni auk þess sem brottfluttir Akureyringar mættu að sunnan. Stemningin var frábær frá upphafi til enda þrátt fyrir erfiða stöðu innan vallar í síðari hálfleik.

Auk þess má ekki gleyma gríðarlega mikilvægum stuðningi fyrirtækja sem gerði okkur kleift að búa til flotta umgjörð fyrir stelpurnar í kringum bikarleikina. Það er dýrt að vera með lið utan af landi í svona verkefni og það gengur alls ekki upp án mikilvægra styrktaraðila.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is