Myndaveisla frá endurkomu KA gegn Val

Handbolti
Myndaveisla frá endurkomu KA gegn Val
Karakterinn geislar af liðinu (mynd: Egill Bjarni)

KA tryggði sér dýrmætt stig gegn Val í KA-Heimilinu í gærkvöldi með ótrúlegri endurkomu á lokamínútum leiksins. Það stefndi allt í sigur gestanna sem leiddu 20-26 er fimm og hálf mínúta var eftir og enn leiddu þeir 23-27 er tæpar þrjár mínútur voru eftir.

En karakterinn sem býr í strákunum er stórfenglegur sem sést hvað best á því að þeir hafa tryggt sér stig á lokasekúndum síðustu þriggja leikja í deildinni auk þess sem þeir innsigluðu sigur gegn Þór í bikarkeppninni á lokamínútunni á dögunum. Þeir lögðu því ekki árar í bát og jöfnuðu metin í 27-27 á lokasekúndunni og þar við sat.

Fögnuður KA manna var eðlilega gríðarlegur enda flestir búnir að afskrifa strákana í þessari erfiðu stöðu. Egill Bjarni Friðjónsson ljósmyndari var á leiknum og býður til myndaveislu frá hasarnum sem og gleðinni í leikslok og kunnum við honum bestu þakkir fyrir framtakið.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna frá leiknum

Það er svo strax aftur leikur hjá strákunum á sunnudag er þeir sækja nágranna okkar í Þór heim í Höllina en að þessu sinni eigast liðin við í Olísdeildinni. Sá leikur verður í beinni á Stöð 2 Sport og áfram mikilvæg stig í húfi auk montréttarins í bænum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is