Kvennalið KA/Þórs undirbýr sig fyrir baráttuna í efstudeild á komandi handboltavetri en stelpurnar okkar unnu frækinn sigur í Grill66 deildinni á nýliðnu tímabili þar sem liðið tapaði ekki einum einasta leik.
Liðinu barst svo öflugur liðsstyrkur fyrir komandi vetur þegar þrír nýir leikmenn skrifuðu undir. Þetta eru þær Bernadett Réka Leiner, Anna Petrovics og Trude Blestrud Håkonsen.
Trude er spennandi örvhent skytta sem einnig getur leikið í horninu en hún er fædd árið 1994 og kemur frá liði Junkeren þar sem hún hefur leikið frá árinu 2020. Hún hefur verið í lykilhlutverki í liði Junkeren en á síðustu leiktíð gerði hún 92 mörk í 22 leikjum en liðið lék í 2. deild. Junkeren er staðsett í norður Noregi þannig að hún ætti að þekkja það vel að vera staðsett norðarlega á hnettinum.
Bernadett Réka Leiner er ungverskur markmaður sem er 26 ára gömul og hún Anna Petrovics er ungverji sem getur leyst allar stöður fyrir utan en hún er 23 ára gömul. Saman koma þær norður frá Austurríska liðinu Greenpower JAGS og verður spennandi að sjá hvernig þær koma inn í okkar lið.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á liði KA/Þórs undanfarin ár þar sem ungar og uppaldar stelpur úr félaginu hafa fengið mikla ábyrgð og er það von okkar að með komu þeirra muni okkar flotti hópur aðeins eflast og tryggja okkar lið í deild þeirra bestu þar sem stelpurnar okkar eiga klárlega heima.
Stefán Guðnason formaður kvennaráðs KA/Þórs var kampakátur við undirritunina og hafði þetta að segja: "Við viljum að sjálfsögðu spila eins mikið og hægt er á okkar heimastelpum, en það var alveg ljóst að það þurfti að breikka hópinn og styrkja fyrir baráttuna í efstudeild. Koma þremenninganna er klárlega lykilskref fyrir hópinn okkar og teljum við okkur vera að taka rétt skref í framþróun okkar uppöldu leikmanna. Jonni þjálfari hefur margoft sýnt að hann er gríðarlega öflugur í að vinna með og þróa unga leikmenn áfram og verður gaman að sjá hópinn taka næstu skref með þeim Bernadett, Önnu og Trude innanborðs."