Olís deildin fer aftur af stað í kvöld

Handbolti
Olís deildin fer aftur af stað í kvöld
Strákarnir ætla sér tvö stig í Hafnarfirðinum!

Það er loksins komið að næsta leik í Olís deild karla hjá KA liðinu þegar strákarnir sækja FH heim í Kaplakrikann klukkan 19:30 í kvöld. Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað vegna ófærðar.

Aðrir leikir deildarinnar fóru hinsvegar fram í gær og varð ljóst að KA mun áfram leika í deild þeirra bestu eftir tap HK gegn Val. KA liðið endar því aldrei neðar en 10. sætið en strákarnir ætla sér klárlega að auka við stigasöfnun vetrarins og verður spennandi að fylgjast með leik kvöldsins, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is