Rakel Sara í liði mótsins, Ísland í 5. sæti

Handbolti
Rakel Sara í liði mótsins, Ísland í 5. sæti
Frábærir fulltrúar KA/Þórs í U19 liðinu!

KA/Þór átti alls fjóra fulltrúa í U19 ára landsliði Íslands í handbolta sem keppti í B-deild Evrópumótsins í Norður Makedóníu sem lauk í dag. Þetta eru þær Anna Marý Jónsdóttir, Júlía Sóley Björnsdóttir, Ólöf Maren Bjarnadóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir.

Keppt var í tveimur fjögurra liða riðlum og fóru efstu tvö liðin áfram í undanúrslitin. Íslenska liðið hóf leik gegn Hvít-Rússum og byrjaði af krafti. Ísland leiddi 13-7 í upphafi og loks 14-10 í hálfleik en tókst að lokum ekki að hanga á forystunni og tapaðist leikurinn á endanum 22-23. Rakel Sara gerði 4 mörk í leiknum og Júlía Sóley eitt mark af línunni.

Stelpurnar komu sér hinsvegar í góða stöðu með 30-27 sigri á Finnum í kjölfarið þar sem Rakel Sara var markahæst með 10 mörk auk þess sem Ólöf Maren varði 10 skot í rammanum. Framundan var því hreinn úrslitaleikur um sæti í undanúrslitunum gegn Póllandi. Pólverjar leiddu 11-13 í hálfleik en þegar skammt var til leiksloka komst Ísland yfir í 21-20 og átti möguleika á að tryggja sigur á lokasekúndunum en tókst ekki og lokatölur 23-23 jafntefli. Rakel Sara gerði 3 mörk í leiknum og Júlía Sóley eitt mark.


Rakel Sara fór hamförum og var valin í lið mótsins

Ísland missti því af sæti í undanúrslitunum á markatölu og lék því um sæti 5-8. Þar mættu stelpurnar liði Kósóvó og þar var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi enda. Ísland komst í 15-6 og leit aldrei um öxl. Vann að lokum 37-23 stórsigur þar sem Rakel Sara gerði 4 mörk, Júlía Sóley 2, Anna Marý eitt mark og Ólöf Maren varði 5 skot í markinu.

Lokaleikur mótsins var því um 5. sætið gegn heimastúlkum í Norður Makedóníu. Íslenska liðið tók forystuna strax í upphafi og virtist hafa gott tak á leiknum. Stelpurnar leiddu 16-13 í hléinu og leiddi svo með fjórum til sex mörkum nær allan síðari hálfleikinn. En lokakaflinn var afleitur sem heimastúlkur nýttu sér til fulls og jöfnuðu í 28-28.

Farið var beint í vítakeppni til að fá úrslit í leikinn og þar vann Ísland 4-2 sigur og önduðu léttar eftir að hafa næstum því misst leikinn frá sér. Rakel Sara var markahæst í liði Íslands með 9 mörk og var að leik loknum valin í lið mótsins. Þetta er í annað skiptið sem Rakel Sara er valin í lið mótsins en hún var í sömu sporum með U17 ára landsliðinu fyrir tveimur árum.

Við óskum stelpunum til hamingju með flott mót, með örlítilli heppni hefði liðið verið að keppa um verðlaun á mótinu en engu að síður frábær reynsla sem öðlast með þátttöku í móti sem þessu. Þá óskum við Rakel Söru innilega til hamingju með sætið í liði mótsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is