Skemmtilegasti tími ársins í handboltanum er á næsta leiti er úrslitaleikir Poweradebikarsins fara fram að Ásvöllum í Hafnarfirði dagana 25.-28. febrúar næstkomandi og til að gera þetta enn skemmtilegra eiga KA og KA/Þór alls sex lið í baráttunni þetta árið!
Meistaraflokkur karla og meistaraflokkur kvenna eru komin í final four og þá eru fjögur lið úr yngriflokkastarfi KA og KA/Þórs komin í úrslitaleikinn í sínum flokki. Það verður því gríðarleg stemning hjá okkar fólki að Ásvöllum þetta árið og spennandi að sjá hvort okkar mögnuðu liðum takist að hampa Bikarmeistaratitli.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla Akureyringa til að taka dagana frá nú þegar og taka þátt í stemningunni enda skiptir ykkar stuðningur öllu máli.

Ballið byrjar miðvikudaginn 25. febrúar þegar KA/Þór mætir Íslandsmeisturum Vals klukkan 20:15 en í hinum undanúrslitaleiknum mætast lið Hauka og Fram. Það eru nokkrar í liði KA/Þórs sem þekkja það að fara alla leið í bikarnum en KA/Þór varð Bikarmeistari árið 2021 í fyrsta skiptið í sögu félagsins.

Fimmtudaginn 26. febrúar er svo komið að strákunum þegar KA liðið mætir ÍR klukkan 20:15 en í hinum undanúrslitaleiknum mætast FH og Haukar. KA sem hefur hampað Bikarmeistaratitlinum þrisvar í sögunni (1995, 1996 og 2004) lék til úrslita síðast árið 2022 og eru nokkrir í liðinu með reynslu af þeim leik sem þeir búa að fyrir komandi baráttu.
Komist liðin okkar áfram í sjálfan úrslitaleikinn er risastór dagur framundan laugardaginn 28. febrúar en auk úrslitaleikja karla og kvenna fara fram úrslitaleikir í 5. og 6. flokki þar sem lið KA og KA/Þórs verða í eldlínunni.

KA strákarnir á yngra ári 6. flokks, fæddir 2015, mæta liði Stjörnunnar klukkan 9:00 í fyrsta úrslitaleik laugardagsins en þetta er yngsti aldursflokkurinn þar sem keppt er í bikarnum. Þjálfari strákanna er Jón Heiðar Sigurðsson.

KA/Þór stelpurnar á yngra ári 5. flokks, fæddar 2013, taka svo við keflinu klukkan 10:00 þegar þær mæta liði Vals í sínum úrslitaleik, þjálfari þeirra er Heimir Örn Árnason.

Hinn ógnarsterki 2012 árgangur KA og KA/Þórs sem skipar eldra ár 5. flokks er í bikarúrslitum annað árið í röð en bæði strákarnir og stelpurnar eru ríkjandi meistarar frá því í fyrra auk þess sem bæði lið unnu sigur á Norden Cup milli jóla og nýárs en þar mættust sterkustu lið Norðurlandanna. Stelpurnar mæta liði Vals klukkan 12:00 en þjálfari þeirra er Heimir Örn Árnason

2012 KA strákarnir spila svo í kjölfarið sinn úrslitaleik klukkan 13:00 gegn liði FH. Þjálfarar strákanna eru Andri Snær Stefánsson og Sigþór Árni Heimisson.
Úrslitaleikur meistaraflokks kvenna fer fram klukkan 15:30 og úrslitaleikur karla fer loks fram klukkan 18:30. Virkilega spennandi og skemmtilegir dagar framundan í Hafnarfirðinum.