Sigurmyndband Íslandsmeistara KA/Þórs

Handbolti
Sigurmyndband Íslandsmeistara KA/Þórs
Besta lið landsins, ekki nokkur spurning!

KA/Þór varð Íslandsmeistari kvenna í handbolta á dögunum eins ætti ekki að hafa farið framhjá neinum. Stelpurnar áttu stórkostlegt tímabil sem þær hófu á því að verða Meistarar Meistaranna, tryggðu sér svo Deildarmeistaratitilinn eftir harða baráttu og loks sjálfan Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa unnið Val í úrslitaeinvíginu.

Stelpurnar brutu þar með heldur betur blað í sögunni en þetta eru fyrstu titlar KA/Þórs. Alls voru 16 af 19 leikmönnum liðsins uppaldir hjá félaginu sem segir allt um hversu frábært starf er unnið í kringum kvennahandboltann hér fyrir norðan.

Að sjálfsögðu erum við búin að taka saman smá syrpu frá því þegar stelpurnar tryggðu Íslandsmeistaratitilinn en myndefnið er fengið úr útsendingum Stöð 2 Sport og klippt saman af Ágústi Stefánssyni. Góða skemmtun og takk fyrir stuðninginn í vetur!

Meistaralið KA/Þórs 2020-2021
Aldís Ásta Heimisdóttir, Anna Mary Jónsdóttir, Anna Þyrí Halldórsdóttir, Arna Valgerður Erlingsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Hildur Lilja Jónsdóttir, Hulda Bryndís Tryggvadóttir, Júlía Sóley Björnsdóttir, Katrín Vilhjálmsdóttir, Kristín Jóhannsdóttir, Martha Hermannsdóttir, Matea Lonac, Ólöf Maren Bjarnadóttir, Rakel Sara Elvarsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Sólveig Lára Kristjánsdóttir, Sunna Guðrún Pétursdóttir, Sunna Katrín Hreinsdóttir og Telma Lísa Elmarsdóttir.

Þjálfari liðsins er Andri Snær Stefánsson og honum til aðstoðar er Sigþór Árni Heimisson.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is