Stórleikur gegn Selfossi í kvöld

Handbolti

Baráttan heldur áfram í Olís deild karla í kvöld þegar KA tekur á móti Selfyssingum klukkan 18:30 í KA-Heimilinu. Deildin er gríðarlega jöfn og spennandi og ljóst að mikið er undir hjá báðum liðum þegar aðeins fimm leikir eru eftir.

Liðin gerðu ævintýralegt jafntefli á Selfossi fyrr í vetur þar sem Tarik Kasumovic skoraði jöfnunarmark KA á lokasekúndunum og má búast við öðrum eins spennuleik í kvöld.

KA situr í 9. sæti deildarinnar fyrir leikinn með 13 stig og er aðeins einu stigi frá sæti í úrslitakeppninni, á sama tíma eru aðeins þrjú stig niður í fallsæti og ansi mikilvægt að halda áfram að sækja stig.

Það er um að gera að drífa sig á leikinn í kvöld og styðja strákana enda aðeins þrír heimaleikir eftir, fyrir ykkur sem ekki komist þá er leikurinn að sjálfsögðu í beinni á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is