Stórleikur í fyrstu umferð! KA/Þór - ÍBV

Handbolti
Stórleikur í fyrstu umferð! KA/Þór - ÍBV
Stelpurnar ætla sér enn meira í vetur!

Handboltaveislan er að hefjast! Íslandsmeistarar KA/Þórs taka á móti ÍBV klukkan 14:00 á laugardaginn í fyrstu umferð Olísdeildar kvenna. Stelpurnar tryggðu sér sæti í bikarúrslitahelginni á dögunum með frábærri frammistöðu gegn Stjörnunni en nú er komið að deildinni.

KA/Þór kom öllum á óvart á síðustu leiktíð er liðið hampaði Íslands- og Deildarmeistaratitlunum auk þess að verða Meistari Meistaranna. Það er því aðeins meiri pressa á liðinu fyrir þessa leiktíð en eitt er víst að okkar frábæra lið mun gefa allt í það að verja titlana og það verkefni hefst á morgun.

Bæði lið ætla sér stóra hluti í vetur og ljóst að um hörkuleik verður að ræða en KA/Þór sló út ÍBV í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins á síðustu leiktíð eftir framlengdan leik. Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni á Stöð 2 Sport, hlökkum til að sjá ykkur!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is