Sumaræfingar handboltans hefjast 5. júní

Handbolti

Handknattleiksdeild KA verður með sumaræfingar fyrir metnaðarfulla og öfluga krakka fædd 2008-2015 í júní. Æfingarnar eru samstarfsverkefni unglingaráðs og meistaraflokka KA og KA/Þórs en leikmenn meistaraflokka munu aðstoða við æfingarnar og miðla af sinni reynslu og þekkingu til iðkenda.

Æfingarnar hefjast 5. júní næstkomandi og standa til 29. júní en allar upplýsingar og skráning fer fram í gegnum Sportabler.

Allar æfingar fara fram í KA-Heimilinu og hefur Halldór Stefán Haraldsson þjálfari meistaraflokks karla yfirumsjón með æfingunum.

*Athugið að tímasetningar á æfingunum geta orðið eitthvað breytilegar en allar upplýsingar verða gefnar út tímanlega í Sportabler.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is